Monday, 12 November 2007

Mánudagur og aftur í vinnuna. Við náðum að koma næstum öllum flísunum á gólfið en munaði mjóu upp á líf og dauða. Hvílíkt skap í litlum gaur ekki beint með bestu þolinmæði í heimi.
Ég lét undan honum með bæði flísar og hönnun. En fæ að ráða öðru í staðinn ha ha.
Við erum húkt á Natchos sem við fengum hjá Bjarti og er það orðinn vanur siður að háma í sig Natchos fyrir framan XFactor á Laugardögum en sé alltaf eftir á því það er bara ekki gott fyrir fólk með magasár að borða chilli. Lífið er ósanngjarnt.
Er búin að versla næstum allar jólagjafir fyrir Fjölsk á Ís og Dan í Nóvember hefur alldrey skeð áður er alltaf á síðasta snúning með buxurnar niðrum mig. En ég verð að vinna yfir öll jólin þannig að það er um að gera að vera búin að þessu sem fyrst. Ef einhver getur gefið mér hugmynd um hvað má gefa kallinum mínum þá er það vel þegið annars fær hann Juicer og nýan varalit.

Friday, 9 November 2007

Þá er helgin að renna í hlað aftur.
Ég og kallakúturinn ætlum að reyna enn og aftur að leggja gólf flísarnar í innganginum eftir nokkrar tilraunir, sem allar hafa farið út um gluggann vegna þess að við getum ekki verið sammála um neinn skapaðan hlut og hann getur ekki bara leyft mér að ráða eins og góður eiginmaður á að gera. Ormurinn. Hann gerir sér greinilega ekki hugmynd um hvað lífið hans yrði mikið notanlegra ef ég fengi bara að ráða hlutunum.
En við sjáum hvað setur um helgina. Ætlum að kjósa um hvað á að leggja, þannig að það er eins gott að hundurinn og kötturinn muni hver gefur þeim að borða ha ha.

Tuesday, 6 November 2007

Howdy alle sammen
Ég kem til Íslands í enda Nóvemeber. Til að fara á námskeið og fyllerí :). Hugsa að ég mæti full af kæti þann 27. Nóv og og segi bæ húllum hæ Sunnudaginn 2. Des.
Hlakkar til að sjá ykkur öll en geri ráð fyrir að ég veri enn og aftur að eyða helling af tíma í vinnunni. Reyni samt að laumast í burtu sem fyrst til að heilsa upp á alla konur, börn og kalla....Og hund.

Monday, 5 November 2007

Aftur í vinnuna

Jæja þá er ég komin aftur í vinnuna eftir vikulangt frí. Magga, pabbi og Óðinn voru hjá mér fyrripart vikunnar fram á fimmtudag. Það var voða gaman en er enn að jafna mig í fótunum eftir búðarbruðl með Möggu sen verslaði eins og óð.
Ég og Les erum að reyna að inrétta húsið en gengur ekki sem best þar sem við hjónakornin erum ekki sammála um neinn skapaðan hlut og bæði of þrjósk til að gefa eftir hinu. Held nú samt að ég vinni á endanum ha ha.

Monday, 20 August 2007

Market Rasen

Fórum á Market Rasen á Laugardaginn sem er reiðhesta völlur í boði Samskipa hér í UK. Mikið fjör og mikið gaman. Veðrið var reyndar ekki upp á sitt besta en við gerðum gott úr með fínum mat í góðum félagsskap. Ég og Les veðjuðum 5 pundum á sitt hvorn hestinn í hverju hlaupi. Les byrjaði á að vinna í fyrstu tveim hlaupunum en svo yfirgaf heilladísin hann en vildi ekki einu sinni heilsa upp á mig þar sem ég vann ekki neitt. En við fórum ekki á hausinn við þetta komum út í um 10 punda mínus. Svo endaði kvöldið með Queen tribute band sem voru bara ferlega góðir og náðu upp miklu stuði hjá mér og mínum.
Fengum aðeins að borga fyrir allt djammið á sunnudagin til fröken þynnku, erum víst að vera of gömul í svona mikið skrall.
Enn og aftur rignir í UK við erum farin að gleyma hvernig himinn er á litinn. En það safnast í sundlaugina í bakgarðinum er að spá í hvort ég eigi að bygga stíflu til að nota orkuna af öllu vatninu í eitthvað hagsamt...

Tuesday, 14 August 2007

Sumarið búið?

Byrjað að rigna aftur. Ég held að sumarið í UK hafi náð allavega viku í ár!
Svava og Gunnar eru flúin af landi brott til Kanarí í viku að hitta Möggu, Óðinn og Hans Þór.
En það er bara fínt að fá smá rigningu. Ekkert verra en að hanga inná skrifstofu með engri lofræsingu í 25 stiga hita svo er þetta líka bara megrandi þar sem maður hangir ekki útí garði langt fram á kvöld og svolgrar í sig öllum köldum bjór sem að munni kemst á meðan sólin leggst til viðar.
Fór í staðinn í gærkveldi á fatahengið (crosstrainer) og hélt út í 20 mínutur á meðan Les sat glaður við og horfði á bossan á mér hristast til. En kötturinn hljóp út með rófuna á milli fótanna og hélt að það væri komin jarðskjálfti.
Horfðum svo á mynd Gridiron Gang. Svo sem ágætasta vitleysa um unglinga fanga í Ameríkunni sem reyna að gera lífið sitt betra með fótbolta. The Rock leit vel út eins og alltaf en því miður ekki farinn að læra að leika enn.

Monday, 13 August 2007

Aftur í vinnuna

Jæja þá er ég mætt aftur í vinnuna eftir viku frí. Sé núna eftir að hafa ekki tekið 2 vikur, hefði allveg haft gott af því. En það verður bara að hafa það er strax farin að skoða frí í næsta mánuði.
Þetta var samt allveg yndisleg vika. Svava, Gunnar, Pétur, Jón, Lilja og Bergþóra mættu síðustu helgi og voru fram á Miðvikudag. Það var mjög gaman að hafa þau öll, fullt hús af fólki. Við fórum meðal annars til Skegness og Flamingo Land.
Mikið labbað, mikið borðað og slappað af á endanum.
Við fengum frábært veður alla vikuna og ég er komin með þokkalegan lit á mig þar sem ég hékk úti seinnipart vikunar og las tvær bækur. Náði að klára síðustu bók Harry Potter. Ekki mikill söknuður þar. Mér fannst allar bækurnar vera frekar langdregnar þar sem höfundur hefði getað gert svo mikið meira inn á milli. Svo las ég eina frá mínum uppáhalds höfundi þessa stundina Karin Slaughter. Ekki fyrir viðkvæma helling af blóði og ógeði en mjög spennandi.

Var að fá boðskort frá Bæjarstjóranum í North East lincs. Er boðin út að borða með honum, sendiherra Íslands Sverrir Haukur Gunnlaugsson og bæjarstjóranum á Akureyri Sigrún Björk Jakobsdóttir þann 6. Sept. Spennandi verð að pússa upp á Íslenskuna mína svo ég geri mér ekki til skammar með ensku slettum.

Sunday, 5 August 2007

Góðan dag kæru vinir og fjölskylda.



Ég er búin að heyra svo mikið um og lesið blogg frá öðrum í fjölskyldunni og haft mikið gaman af að fylgjast með hvað er að gerast hjá fólki að ég má til með að prófa þetta sjálf.

Ég vona að ég nái að halda þessu við en er ansi rædd um að ég er víst ekki með nógu mikla tölvusýki til að hanga við hana allan daginn en ég ætla að prófa.

Vona líka til að heyra í sem flestum á þessari síðu.