Tuesday, 14 August 2007

Sumarið búið?

Byrjað að rigna aftur. Ég held að sumarið í UK hafi náð allavega viku í ár!
Svava og Gunnar eru flúin af landi brott til Kanarí í viku að hitta Möggu, Óðinn og Hans Þór.
En það er bara fínt að fá smá rigningu. Ekkert verra en að hanga inná skrifstofu með engri lofræsingu í 25 stiga hita svo er þetta líka bara megrandi þar sem maður hangir ekki útí garði langt fram á kvöld og svolgrar í sig öllum köldum bjór sem að munni kemst á meðan sólin leggst til viðar.
Fór í staðinn í gærkveldi á fatahengið (crosstrainer) og hélt út í 20 mínutur á meðan Les sat glaður við og horfði á bossan á mér hristast til. En kötturinn hljóp út með rófuna á milli fótanna og hélt að það væri komin jarðskjálfti.
Horfðum svo á mynd Gridiron Gang. Svo sem ágætasta vitleysa um unglinga fanga í Ameríkunni sem reyna að gera lífið sitt betra með fótbolta. The Rock leit vel út eins og alltaf en því miður ekki farinn að læra að leika enn.

No comments: