Monday, 13 August 2007

Aftur í vinnuna

Jæja þá er ég mætt aftur í vinnuna eftir viku frí. Sé núna eftir að hafa ekki tekið 2 vikur, hefði allveg haft gott af því. En það verður bara að hafa það er strax farin að skoða frí í næsta mánuði.
Þetta var samt allveg yndisleg vika. Svava, Gunnar, Pétur, Jón, Lilja og Bergþóra mættu síðustu helgi og voru fram á Miðvikudag. Það var mjög gaman að hafa þau öll, fullt hús af fólki. Við fórum meðal annars til Skegness og Flamingo Land.
Mikið labbað, mikið borðað og slappað af á endanum.
Við fengum frábært veður alla vikuna og ég er komin með þokkalegan lit á mig þar sem ég hékk úti seinnipart vikunar og las tvær bækur. Náði að klára síðustu bók Harry Potter. Ekki mikill söknuður þar. Mér fannst allar bækurnar vera frekar langdregnar þar sem höfundur hefði getað gert svo mikið meira inn á milli. Svo las ég eina frá mínum uppáhalds höfundi þessa stundina Karin Slaughter. Ekki fyrir viðkvæma helling af blóði og ógeði en mjög spennandi.

Var að fá boðskort frá Bæjarstjóranum í North East lincs. Er boðin út að borða með honum, sendiherra Íslands Sverrir Haukur Gunnlaugsson og bæjarstjóranum á Akureyri Sigrún Björk Jakobsdóttir þann 6. Sept. Spennandi verð að pússa upp á Íslenskuna mína svo ég geri mér ekki til skammar með ensku slettum.

1 comment:

Anonymous said...

Góður þessi, bara komin í hóp með fyrirmönnum bæjarins. Go girl !
Er einmitt að lesa Potterinn, sammála hún er heldur langdregin en samt skrýtið ég get ekki alveg slitið mig frá henni. Væri löngu búin að henda annarri álíka langdreginni bók út í horn. þetta er eitthvað trix hjá henni Jóhönnu Rowlingsss.