Wednesday, 1 April 2009

Prufa



Er að prufa hvort ég geti Bloggað beint frá emailinu mínu. Sjáum til þá kannski fer mann að gera þetta reglulega. Þar sem ég geri varla annað allan daginn en að lesa og skrifa email.
Vorið er komið hérna í UK með hvílíkri blíðu og sólskyni. Ég og kallakútur sátum í garðinum í gærkveldi til kl 7 og skemmtum okkur við að fylgjast með Má-ling verja svæði sitt fyrir kattarorminum sem býr við hliðina á okkur. Það voru miklar kúnstir í gangi hjá báðum en að lokum vann Má-Ling eftir að hafa hlaupið í burtu einu sinni en kallakútur náði í hann aftur. Hann tók sig svo á þegar nágrannakötturinn var kominn of nálægt mér þá var honum nóg boðið. Ó hvað við vorum solltir kattaforeldrar :)