Monday, 20 August 2007

Market Rasen

Fórum á Market Rasen á Laugardaginn sem er reiðhesta völlur í boði Samskipa hér í UK. Mikið fjör og mikið gaman. Veðrið var reyndar ekki upp á sitt besta en við gerðum gott úr með fínum mat í góðum félagsskap. Ég og Les veðjuðum 5 pundum á sitt hvorn hestinn í hverju hlaupi. Les byrjaði á að vinna í fyrstu tveim hlaupunum en svo yfirgaf heilladísin hann en vildi ekki einu sinni heilsa upp á mig þar sem ég vann ekki neitt. En við fórum ekki á hausinn við þetta komum út í um 10 punda mínus. Svo endaði kvöldið með Queen tribute band sem voru bara ferlega góðir og náðu upp miklu stuði hjá mér og mínum.
Fengum aðeins að borga fyrir allt djammið á sunnudagin til fröken þynnku, erum víst að vera of gömul í svona mikið skrall.
Enn og aftur rignir í UK við erum farin að gleyma hvernig himinn er á litinn. En það safnast í sundlaugina í bakgarðinum er að spá í hvort ég eigi að bygga stíflu til að nota orkuna af öllu vatninu í eitthvað hagsamt...

4 comments:

Anonymous said...

Þið hljótið að fá einstakt haust því hér er farið að rigna eldi og brennisteini. Gangi þér vel á fatahenginu.

Anonymous said...

Hæ Hulda
Frábært að þú sért farin að blogga, bæti þér hér með á daglegan lista yfir bloggsíður sem ég kíki á :) Rétt hjá Gerði - við ættum bara öll að blogga....

Anonymous said...

Hæ það er kominn september ! Blogga ; )

Bjartur og Ragga said...

hejsa, leitt að heira um alla bleitunaen rignir ekki um 300 daga á ári þarna í UK :-)