Þá er helgin að renna í hlað aftur.
Ég og kallakúturinn ætlum að reyna enn og aftur að leggja gólf flísarnar í innganginum eftir nokkrar tilraunir, sem allar hafa farið út um gluggann vegna þess að við getum ekki verið sammála um neinn skapaðan hlut og hann getur ekki bara leyft mér að ráða eins og góður eiginmaður á að gera. Ormurinn. Hann gerir sér greinilega ekki hugmynd um hvað lífið hans yrði mikið notanlegra ef ég fengi bara að ráða hlutunum.
En við sjáum hvað setur um helgina. Ætlum að kjósa um hvað á að leggja, þannig að það er eins gott að hundurinn og kötturinn muni hver gefur þeim að borða ha ha.
Friday, 9 November 2007
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
3 comments:
Ég hélt að þið hefðuð verið búin að velja flísarnar ?
Grey kúturinn ! Þið komist ábyggilega að samkomulagi :)
hæ ..þú verður bara að laumast og kaupa fílsar og segirðu bara að þær voru meget billig :-))
Post a Comment