Tuesday, 27 May 2008

Lazy lazy blogger

Jæja ekki nema 2 mánuðir frá síðasta bloggi. Lazy me. Lífið gengur bara sinn vanagang hérna án nokkurra tilvika. Kallakúturinn keypti sér nýtt hjól og náði í það um helgina. Það er hrikalega stórt og það er stærri vél í því heldur en í bílnum hans litla.
Hér var löng helgi núna þar sem var bank holiday. Ég sat ein og horfði á Evrovision og hvílík pólitík sem er komið inn í þetta. Ég er ekki alveg að nenna að fylgjast með þessu lengur ef þeir fara ekki að gera neitt í sínum málum. Allir bara að kjósa nágranna sína svo að Ísland hefur ekki mikinn sjéns og UK engan. Vestur og Austur Evropa ættu að vera með sínhvora keppnina svo að þetta verði sanngjarnara. En Ísland stóð sig vel að mínu áliti.

Tuesday, 4 March 2008

hurðar og hvolpaást

Húsið er allt að koma til hjá okkur, fer alveg að verða búið að innrétta. Kallakúturinn er búinn að setja upp hurðarnar á neðri hæðinni og er svo stoltur af sínu verki að hann labbar um eins og einhverfur og opnar hurðirnar og lokar hurðunum og opnar hurðirnar og lokar..............
Jessica er komin með kærasta Bob (við köllum alla kærastana Bob þar til þetta er orðið alvarlegra svo að við þurfum ekki að læra nafn á hverjum kærasta aldrey að vita hvað þeir verða margir.)
Allavega stóra spurningin kom um daginn "má Bob lúlla"? Eftir að Kallakútur reis upp af gólfinu með andlit sem skipti litum þá liðu nokkrar mínútur. Þögnin var svo mikil að við heyrðum í köngulónni í horninu reka við og ég hélt niður mér andanum af spennu. (Er nú búin að vera að reyna að undirbúa kútinn undir þetta).
Á endanum segir kallakútur "Ég ætla að segja nei í þetta skifti. Spurðu mig aftur eftir 2 vikur."
Segi mér einhver hvaða máli skipta 2 vikur?????? Þar er ekki eins og þau gifti sig á þessum tíma.
Ætli ég þurfi ekki að fara að læra nafnið hans Bobs.

"Pure love is a willingness to give without a thought of receiving anything in return"

Thursday, 28 February 2008

Jarðskjálfti

Vaknaði í skelfingu um miðja nótt við það sem húsið hristis og nötraði. Var ekki viss hvað þetta var, var mig að dreyma eða voru þetta nágrannanir að hafa það kósý hmmmm.
En til að vera viss vakti ég kallakút og sagði honum að húsið væri að hrynja. Hann rumskaði, sagði mér að hætta þessu rugli, klóraði sér í pungnum, snéri sér á hina hliðina og hóg keppni við Fudge um hver hraut hærra. Ó hann er hetjan mín !!!

Monday, 11 February 2008

Afmæli í Leeds

Fórum til Leeds um helgina þar sem Svava og Kallakúturinn áttu afmæli í gær. Voða gaman Svava var með teiti fyrir og bauð stelpum sem eru í skólanum með henni.
Borðuðum góðan mat á Íslenskan máta og spiluðum orðaspil við ofurmenntaða kennara en þær voru allar útlenskar og ég var með kallakút sem leynivopn þar sem hann var eini Bretinn.
Yndislegt vorveður um helgina sól og hiti. Ég let mig þess vegna hafa það að labba tvo daga í röð upp brekkuna hennar Svövu og er að borga fyrir það núna

Wednesday, 6 February 2008

Loksins komin aftur

Það er naumast sem Svava er dugleg að blogga http://svavap.blogspot.com/. Var að enda við að skoða síðuna hennar. Alltaf gaman að fylgjast með þeim þarna hinum megin við M62. Við kallakútur plönum á að kýkja á stóru systir um helgina þar sem hún og Les eiga bæði afmæli á Sunnudaginn. Svava ætlar að vera með eitthvað hóf svo mig hlakkar til. Verst að hitta þau ekki meira.
Við hjónin erum á kafi í innréttingum og það eru húsgögn út um allt hús og ekkert tilbúið. Keyptum þennan hvílíka sófa í sólstofuna sem átti ekki að koma fyrr en eftir um mánuð en kom svo á Mánudaginn og ég er ekki búin að losa mig við húsgögnin sem voru þar áður. Fudge og Maoling eru brjáluð útaf þau fá ekki að fara á nýja sóffann og Fudge er ekkert á því að gefast upp að reyna að hoppa á hann þannig að held að það verið ekki langt þar til hún meikar það.

Monday, 12 November 2007

Mánudagur og aftur í vinnuna. Við náðum að koma næstum öllum flísunum á gólfið en munaði mjóu upp á líf og dauða. Hvílíkt skap í litlum gaur ekki beint með bestu þolinmæði í heimi.
Ég lét undan honum með bæði flísar og hönnun. En fæ að ráða öðru í staðinn ha ha.
Við erum húkt á Natchos sem við fengum hjá Bjarti og er það orðinn vanur siður að háma í sig Natchos fyrir framan XFactor á Laugardögum en sé alltaf eftir á því það er bara ekki gott fyrir fólk með magasár að borða chilli. Lífið er ósanngjarnt.
Er búin að versla næstum allar jólagjafir fyrir Fjölsk á Ís og Dan í Nóvember hefur alldrey skeð áður er alltaf á síðasta snúning með buxurnar niðrum mig. En ég verð að vinna yfir öll jólin þannig að það er um að gera að vera búin að þessu sem fyrst. Ef einhver getur gefið mér hugmynd um hvað má gefa kallinum mínum þá er það vel þegið annars fær hann Juicer og nýan varalit.

Friday, 9 November 2007

Þá er helgin að renna í hlað aftur.
Ég og kallakúturinn ætlum að reyna enn og aftur að leggja gólf flísarnar í innganginum eftir nokkrar tilraunir, sem allar hafa farið út um gluggann vegna þess að við getum ekki verið sammála um neinn skapaðan hlut og hann getur ekki bara leyft mér að ráða eins og góður eiginmaður á að gera. Ormurinn. Hann gerir sér greinilega ekki hugmynd um hvað lífið hans yrði mikið notanlegra ef ég fengi bara að ráða hlutunum.
En við sjáum hvað setur um helgina. Ætlum að kjósa um hvað á að leggja, þannig að það er eins gott að hundurinn og kötturinn muni hver gefur þeim að borða ha ha.