Wednesday, 6 February 2008

Loksins komin aftur

Það er naumast sem Svava er dugleg að blogga http://svavap.blogspot.com/. Var að enda við að skoða síðuna hennar. Alltaf gaman að fylgjast með þeim þarna hinum megin við M62. Við kallakútur plönum á að kýkja á stóru systir um helgina þar sem hún og Les eiga bæði afmæli á Sunnudaginn. Svava ætlar að vera með eitthvað hóf svo mig hlakkar til. Verst að hitta þau ekki meira.
Við hjónin erum á kafi í innréttingum og það eru húsgögn út um allt hús og ekkert tilbúið. Keyptum þennan hvílíka sófa í sólstofuna sem átti ekki að koma fyrr en eftir um mánuð en kom svo á Mánudaginn og ég er ekki búin að losa mig við húsgögnin sem voru þar áður. Fudge og Maoling eru brjáluð útaf þau fá ekki að fara á nýja sóffann og Fudge er ekkert á því að gefast upp að reyna að hoppa á hann þannig að held að það verið ekki langt þar til hún meikar það.

No comments: