Thursday, 28 February 2008

Jarðskjálfti

Vaknaði í skelfingu um miðja nótt við það sem húsið hristis og nötraði. Var ekki viss hvað þetta var, var mig að dreyma eða voru þetta nágrannanir að hafa það kósý hmmmm.
En til að vera viss vakti ég kallakút og sagði honum að húsið væri að hrynja. Hann rumskaði, sagði mér að hætta þessu rugli, klóraði sér í pungnum, snéri sér á hina hliðina og hóg keppni við Fudge um hver hraut hærra. Ó hann er hetjan mín !!!

1 comment:

Anonymous said...

Hvað er þetta endalausar náttúruhamfarir, flóð í fyrra og jarðskjálfti í ár. Þú sem ert svona fyndinn og góður penni ættir bara að fara að skrifa skáldsögu um þetta allt saman.
kv. Gerður