Monday, 11 February 2008

Afmæli í Leeds

Fórum til Leeds um helgina þar sem Svava og Kallakúturinn áttu afmæli í gær. Voða gaman Svava var með teiti fyrir og bauð stelpum sem eru í skólanum með henni.
Borðuðum góðan mat á Íslenskan máta og spiluðum orðaspil við ofurmenntaða kennara en þær voru allar útlenskar og ég var með kallakút sem leynivopn þar sem hann var eini Bretinn.
Yndislegt vorveður um helgina sól og hiti. Ég let mig þess vegna hafa það að labba tvo daga í röð upp brekkuna hennar Svövu og er að borga fyrir það núna

3 comments:

Anonymous said...

Hæ hæ
Gaman að þú skuldir blogga, skilaðu afmæliskveðju til Les - til hamingju með sófann, hlakka til að sjá allt nýja lookið. Ég er að bræða það með mér hvort við Óðinn kíkjum í ágúst. Trítla er ólétt þannig að ég verð líklega (vonandi :)) komin með fullt hús af ketlingum bráðum, ætla að sjá hvernig þeir braggast.
kv.
Magga

Svava Pétursdóttir said...

Nei mín brekka er í hina áttina, þessa eiga Gunnar og Bergþóra þau skoppa hana alltaf í skólann, þú segir ekkert hvert erindið var niður brekkuna í seinna skiptið ? !

Anonymous said...

Frábært að fá blogg ! til hamingju með kallakút.
kv. Gerður