Jæja ekki nema 10 dagar þar til við nemum land íss og eldar. Ég er búin að vera mikið upptekin í samræðum við veður guðina um að gefa okkur sól og 25 stiga hita. Þeir eru ekki beint að gefa sig með þetta en ég held áfram að tuða í þeim.
Það er nú meira að heyra um kreppuna sem er að taka skerið í gegn. Hér er þetta ekki eins slæmt en olíuverðið er að hafa áhrif á allt verðlag. Verð að fara halda í budduna og elda fyrir tvo í staðinn fyrir 10. Mann lærir kannski eitthvað af þessu.
"You must trust and believe in peoble or life becomes impossible."
Tuesday, 22 July 2008
Wednesday, 9 July 2008
Ferðalög
Jæja þá er ég komin aftur heim eftir Spánarferð með tveim bræðrum kallakúts sem var alveg ágæt en hefði þí fremur kosið að það hefðu bara verið við tvö hjónakornin eða aðra ferðafélaga þar sem við erum öll svo ólík og allir voru með mismunandi skoðanir á hvað þau vildu fá útúr fríinu. En ekki meira með það við skemmtum okkur öll vel. Og núna liggur bara Ísland fyrir þar sem við strumparnir úr UK ætlum að nema land undir fót þann 1. Ágúst n.k og ég get ekki beðið.
Þar verður mjög spennandi að sjá hvernig krökkunum líst á móðurland stjúpu sinnar.
Þar verður mjög spennandi að sjá hvernig krökkunum líst á móðurland stjúpu sinnar.
Tuesday, 17 June 2008
Tuesday, 10 June 2008
Monday, 2 June 2008
Jarðskjálfi

Hæ hæ
Vona að það sé í lagi með alla á skerinu eftir jarðskjálftan. Reyndi að fylgjast með þessu á netinu en helv... netið er að gera mig vitlausa. Vorum að bæta við þjónustuna hjá netfyritækinu og fá okkur fljótara breiðband en eftir þetta þá virkar ekkert allmennilega og þegar ég reyni að hringja fæ ég bara einhvern ali baba útí Indlandi sem ég skil ekki bofs í hvað er að bulla arrrrrrg.
Tuesday, 27 May 2008
Lazy lazy blogger
Jæja ekki nema 2 mánuðir frá síðasta bloggi. Lazy me. Lífið gengur bara sinn vanagang hérna án nokkurra tilvika. Kallakúturinn keypti sér nýtt hjól og náði í það um helgina. Það er hrikalega stórt og það er stærri vél í því heldur en í bílnum hans litla.
Hér var löng helgi núna þar sem var bank holiday. Ég sat ein og horfði á Evrovision og hvílík pólitík sem er komið inn í þetta. Ég er ekki alveg að nenna að fylgjast með þessu lengur ef þeir fara ekki að gera neitt í sínum málum. Allir bara að kjósa nágranna sína svo að Ísland hefur ekki mikinn sjéns og UK engan. Vestur og Austur Evropa ættu að vera með sínhvora keppnina svo að þetta verði sanngjarnara. En Ísland stóð sig vel að mínu áliti.Tuesday, 4 March 2008
hurðar og hvolpaást
Húsið er allt að koma til hjá okkur, fer alveg að verða búið að innrétta. Kallakúturinn er búinn að setja upp hurðarnar á neðri hæðinni og er svo stoltur af sínu verki að hann labbar um eins og einhverfur og opnar hurðirnar og lokar hurðunum og opnar hurðirnar og lokar..............
Jessica er komin með kærasta Bob (við köllum alla kærastana Bob þar til þetta er orðið alvarlegra svo að við þurfum ekki að læra nafn á hverjum kærasta aldrey að vita hvað þeir verða margir.)
Allavega stóra spurningin kom um daginn "má Bob lúlla"? Eftir að Kallakútur reis upp af gólfinu með andlit sem skipti litum þá liðu nokkrar mínútur. Þögnin var svo mikil að við heyrðum í köngulónni í horninu reka við og ég hélt niður mér andanum af spennu. (Er nú búin að vera að reyna að undirbúa kútinn undir þetta).
Á endanum segir kallakútur "Ég ætla að segja nei í þetta skifti. Spurðu mig aftur eftir 2 vikur."
Segi mér einhver hvaða máli skipta 2 vikur?????? Þar er ekki eins og þau gifti sig á þessum tíma.
Ætli ég þurfi ekki að fara að læra nafnið hans Bobs.
"Pure love is a willingness to give without a thought of receiving anything in return"

Subscribe to:
Posts (Atom)
!!!!!!!!